Skip to product information
1 of 3

Undra

V I R K J A Íslensk burnirót

V I R K J A Íslensk burnirót

Upprunalegt verð 6.900 ISK
Upprunalegt verð Útsöluverð 6.900 ISK
Útsala Uppselt
Taxes included. Sendingarkostnaður bætist við (ef viðeigandi)

Innihaldslýsing

Vatn, alkóhól, Burnirót (Rhodiola rosea)

Upplýsingar um vöru

Einbeiting - seigla - orka - minni

Burnirót er einstök lækningajurt sem hefur í aldaraðir verið þekkt fyrir stykjandi eiginleika sína. Hún hefur verið notuð til að koma jafnvægi á taugakerfið, bæta líkamlega orku og þrautseigju. Hún hefur líka verið vinsæl meðal þeirra sem glíma við athygglisbrest eða ofvirkni, depurð, þunglyndi og kvíða. Íþróttafólk hefur einnig notið góðs af þessari kröftugu jurt, en hún hefur verið notuð til að bæta úthald, kynhvöt og skjaldkirtils virkni. Hún er í flokki jurta sem nefnast “adaptogen”, sem eru jurtir sem aðstoða líkamann við að aðlagast eða verjast gegn stressvöldum. Þetta geta verið huglægir eða líkamlegir stressvaldar. Auk þess inniheldur burnirót mikið magn andoxunarefna, sem eru þekkt fyrir styrkjandi áhrif sín á ónæmiskerfið, hjarta og lifur. Burnirót hefur verndandi áhrif á heilafrumur og hefur verið notuð í því skyni að bæta minni, lærdóm, einbeitingu og framleiðslu gleðihormóna. Hún gerir þetta meðal annars með því að vernda taugaboðefni. Fyrir suma getur jurtin verið örfandi og því ekki æskileg á kvöldin, en fyrir aðra er hún róandi og getur stutt við svefn. 

Á latínu heitir hún því fagra nafni Rhodiola rosea, og er hún í rósaætt. Hún vex meðal annars á fjöllum á Íslandi og öðrum norðurlöndum. Hún er hægvaxandi og er því mikilægt að varfærni sé gætt við söfnun hennar. Burnirótin hjá Undra er ekki villt heldur ræktuð á Íslandi. 

Upplýsingar um neyslu

20-40 dropar tvisvar til þrisvar á dag út í vatn eða annan vökva, eða eftir þörfum.

Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti eða á lyfjum, endilega hafðu samband við lækni eða grasalækni fyrir notkun.

Ekki æskilegt fyrir börn

ATH: varan inniheldur áfengi

Geymist á dimmum og svölum stað, þar sem börn ná ekki til.

Skoða nánar